 |
 |
| GHL 2003 - Hitt og þetta í blöðum |
 |
Ímislegt af www.mbl.is
Veröld/Fólk | lau. 15.2.2003 | Vægi 79% „Segðu mér allt“ sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins Lagið Segðu mér allt sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fór í Háskólabíói í kvöld. Birgitta Haukdal söng lagið sem er eftir Hallgrím Óskarsson, en textann sömdu þau í sameiningu. Lagið verður því framlag Íslands í Evróvisjón söngvakeppninni sem fram fer í Riga í Lettlandi 24. maí í vor. Fólk valdi besta lagið með því að hringja inn og voru gild atkvæði um 70 þúsund. Sigurlagið hlaut 21.964 atkvæði.
Innlent| 1.4.2003 | 18:26 Ferð til Kína frestað vegna lungnabólgufaraldurs Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn og VISA Island hafa ákveðið að fresta fyrirhugaðri ferð til Shanghai í Kína vegna lungnabólgufaraldurs, sem þar geisar. 450 farþegar höfðu bókað sig í ferðina og býðst þeim í staðinn vikukferð í beinu leiguflugi til Peking 28. október.
Innlent| 1.4.2003 | 11:42 Dregur úr fylgi Samfylkingar samkvæmt könnun DV Dregið hefur úr fylgi Samfylkingarinnar samkvæmt skoðanakönnun sem DV gerði í gærkvöldi og birtir í dag. Mælist fylgi flokksins 27,1% en var 34,5% í síðustu könnun DV í byrjun mars. Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist 42,7% en var 42,2% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokks mældist 15% og hefur aukist um 2,8 prósentustig, fylgi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs er 9,4% samkvæmt könnuninni en var 7,7% í byrjun mars. Þá mælist fylgi Frjálslynda flokksins 5,5% en var 3,3% í síðustu könnun.
Innlent | 30.3.2003 | 16:01 Davíð Oddsson hlýtur 98% atkvæða sem formaður Sjálfstæðisflokks Davíð Oddsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 98% atkvæða á landsfundi flokksins í dag. Alls greiddu 917 landsfundarfulltrúa formanninum atkvæði sitt. Halldór Blöndal segir að formaður flokksins hafi aldrei áður hlotið jafn góða kosningu í endurkjöri. Alls greiddu 950 atkvæði í kosningunni. Tuttugu atkvæði féllu í hlut annarra landsfundarfulltrúa og auðir seðlar og ógildir voru 15. Kosning um embætti varaformanns flokksins stendur yfir.
Innlent | 31.3.2003 | 7:12 Fylgi Framsóknarflokksins 9,3% í könnun Fréttablaðsins Fylgi Framsóknarflokksins mælist 9,3% í könnun Fréttablaðsins og hefur ekki áður mælst jafn lágt í könnunum blaðsins. Samfylkingin fengi 38,5% atkvæða, Sjálfstæðisflokkurinn 35%, Vinstri grænir fengju 9% og Frjálslyndi flokkurinn 8%. Ef niðurstöður kosninga yrðu í samræmi við skoðanakönnunina fengi Framsóknarflokkurinn sex þingsæti og Sjálfstæðisflokkur 22. Stjórnarflokkarnir fengju því samanlagt 28 af 63 þingsætum. Frjálslyndi flokkurinn fengi 5 þingsæti, Samfylkingin 24 og Vinstri grænir 6 þingsæti.
Tölvur og tækni | 31.3.2003 | 14:50 Tölvum gert kleift að skilja íslenskt mál Menntamálaráðherra, forstjórar Landsíma Íslands, Nýherja, Hex og Grunns-Gagnalausna ásamt rektor Háskóla Íslands skrifuðu í dag undir samning um tungutækniverkefni sem styrkt verður úr tungutæknisjóði menntamálaráðuneytisins. Nemur styrkurinn 14,8 milljónum króna. Verkefnið sem nú er styrkt nefnist Hjal og felst í að gera tölvum og tækjabúnaði kleift að skilja talað íslenskt mál. Menntamálaráðuneytið segir að í Hjal-verkefninu verði byggð upp málsöfn og aðrir þekkingargrunnar sem ekki hafi verið til áður fyrir íslensku. Slík söfn séu undirstaða fyrir tungutækniverkefni sem byggja á töluðu máli. Einfalt dæmi sé sjálfvirk svörun í síma.
Verkefnið verður unnið í samstarfi fyrirtækjanna fjögurra og íslenskuskorar Háskóla Íslands. Í verkefninu taka þátt nemar í meistaranámi í tungutækni sem hófst við Háskóla Íslands síðastliðið haust. Í apríl á síðasta ári styrkti tungutæknisjóðurinn átta verkefni um samtals 36 milljónir króna. Þau verkefni voru til þróunar á hugbúnaði til að greina beygingar orða og málfræðivillur. Ráðuneytið segir að verkefnin sem styrkt voru í fyrra séu komin vel á veg en nú sé komið að því að byggja upp gagnagrunna fyrir tal og meðferð þess í tölvu. Hjal-verkefnið sé stór áfangi á sviði tungutækni og styttist nú vonandi í að bæði íslenskt ritmál og talmál verði nothæf í íslenskum upplýsingakerfum.
Tölvur og tækni| 25.3.2003 | 14:32 Uppsveitir Árnessýslu netvæðast Nú er hægt að fá tengingu við internetveitu Ábótans í uppsveitum Árnessýslu. Búnaðurinn býður upp á samnýtingu á örbylgjuloftneti með allt að 1024 kbit/s sambandi. Drægni örbylgjubúnaðarins er 15-20 km sjónlína við Langholtsfjall eða hús Neseyjar ehf. við Árnes.
Tölvur og tækni| 20.3.2003 | 23:32 Fólk flykkist á Netið til þess að fylgjast með stríðinu Hernaður á hendur Írak hefur orðið til þess að fólk hefur flykkst á fréttasíður á Netinu í miklum mæli til að fylgjast með nýjustu atburðunum í átökunum. Straumur fólks á fréttasíður hefur hins vegar orðið þess valdandi að svartími þeirra er lengri en áður, að sögn fréttavefsvæðis BBC, en þar hefur umferð þrefaldast.
Erlent| AP | 1.4.2003 | 21:57 Kennurum vikið frá störfum vegna stríðsmótmæla Tveimur menntaskólakennurum í Albuquerque í Nýju-Mexíkó hefur verið vikið tímabundið frá störfum fyrir að neita að fjarlægja myndverk nemenda, tengd stríðinu í Írak, af veggjum kennslustofa sinna.
Erlent| AP | 1.4.2003 | 16:14 WHO ígrundar að vara við ferðalögum til Asíu Yfirmenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eru að ígrunda hvort gefa eigi út yfirlýsingu þar sem fólki er ráðið frá því að ferðast til Hong Kong og annarra þeirra Asíuríkja sem orðið hafa illa úti í lungnabólgufaraldri. Yfirvöld í Hong Kong hafa lýst því yfir að enn hafi ekki verið unnt að sína fram á tengsl nýrra tilfella þar í landi og þeirra tilvika þar sem fólk hafi sýkst af heilkennum alvarlegrar og bráðrar lungnabólgu (SARS) sem hefur orðið 63 manneskjum að aldurtila og veikt ríflega 1.600.
Erlent | 1.4.2003 | 9:32 Tveir hraðbankar sprengdir upp í Svíþjóð Tveir hraðbankar voru sprengdir upp með 20 mínútna millibili í sænsku bæjunum Rimbo og Norrtälje í nótt. Skömmu síðar kviknaði í bensínstöð þar skammt frá og telur sænska lögreglan að bankaræningjarnir hafi verið þar að verki til að villa um fyrir lögreglu.
Veröld/Fólk| 31.3.2003 | 11:00 Starr gagnrýnir McCartney Ringo Starr hefur gagnrýnt Sir Paul McCartney, fyrrum félaga sinn í bresku Bítlunum, fyrir að breyta höfundarmerkingu á lögum sem McCartney og John Lennon voru báðir skrifaðir fyrir. Lögin hafa ávallt verið merkt Lennon/McCartney en á hljómleikaplötu sem McCartney gaf út á síðasta ári breytti hann merkingunum á lögum sem hann samdi einn í Samið af Paul McCartney og John Lennon.
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 29.3.2003 | 5:30 „Við erum á toppinum núna“ Lið Menntaskólans í Reykjavík fór ellefta árið í röð með sigur af hólmi í úrslitaviðureign Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, sem fram fór í Smáralind í gærkvöld. Sigruðu MR-ingarnir lið Menntaskólans við Sund með 35 stigum gegn 22.
Veröld/Fólk | AFP | 27.3.2003 | 12:43 "Lennon hefði sagt Blair til syndanna" Yoko Ono, ekkja Bítilsins John Lennons, lýsti því yfir í dag að Lennon hefði örugglega sagt Tony Blair, forsætisráðherra Breta, og George W. Bush Bandaríkjaforseta til syndanna vegna hernaðarins í Írak, væri hann enn á lífi.
|
|
|
|
 |