 |
 |
| GHL 2003 - Viðskipti |
 |

Viðskipti | þri. 1.4.2003 | Vægi 97% Handbært fé deCODE lækkaði um 3,5 milljarða á síðasta ári Handbært fé deCODE Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, lækkaði úr 153 milljónum dala, um 11,7 milljörðum króna, í um 93 milljónir dala eða um 7,2 milljarða dala á síðasta ári. Fram kom á símafundi félagsins í dag að áætlanir gerðu ráð fyrir að handbært fél félagsins muni lækka í mesta lagi um 20 milljónir dala eða rúmlega 1,5 milljarð króna, á yfirstandandi ári. Meira
Viðskipti | þri. 1.4.2003 | Vægi 97% Tíu milljarða króna tap hjá deCODE Decode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, tapaði 130 milljónum dala á árinu 2002 eða sem nemur 9.966 milljónum íslenskra króna. Þetta jafngildir því að 2,65 dalir hafi tapast á hvern hlut í félaginu 2002.
Innlent | mið. 24.7.2002 | Vægi 96% Landsbankinn í innheimtuaðgerðir gegn Norðurljósum Landsbanki Íslands hf. hefur gjaldfellt nítján skuldabréf Norðurljósa upp á alls 95 milljónir króna. Skulda Norðurljós lífeyrissjóðunum í landinu um tvo milljarða króna í skuldabréfum og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins á Landsbankinn 22 af þessum bréfum. Þau voru með gjalddaga á vaxtagreiðslum 30. maí sl. og hefur bankinn gjaldfellt nítján þeirra.
Innlent | fös. 3.1.2003 | Vægi 82% Bankastjóri Landsbankans ánægður með söluna Gengið var frá sölu á 45,8% hlut í Landsbanka Íslands fyrir 12,3 milljarða króna til Samsonar ehf. á gamlársdag. Í samningnum er m.a. kveðið á um að kaupverð geti lækkað um allt að 700 milljónir króna við endurmat á tilteknum eignaliðum bankans sem fram á að fara í október.
Viðskipti | fim. 27.3.2003 | Vægi 41% Kaupþing og Búnaðarbankinn í samrunaviðræður Stjórn Kaupþings banka hf. og bankaráð Búnaðarbanka Íslands hf. hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samvinnu eða sameiningu bankanna.Með viðræðunum er stefnt að því að mynda stærri og sterkari einingu sem er betur í stakk búin til að veita víðtæka og samkeppnishæfa fjármálaþjónustu hér á landi sem og á alþjóðlegum mörkuðum. Stefnt er að því að ljúka viðræðum eins skjótt og kostur er.
Innlent | þri. 4.3.2003 | Vægi 80% Fjallað um Davíð og Baug í FT Breska blaðið Financial Times fjallar í dag um ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráðherra þess efnis að Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs Group hf., hefði sagt sér í janúar á seinasta ári að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefði látið þess getið að greiða þyrfti Davíð Oddssyni 300 milljónir króna gegn því að hann léti af andstöðu við fyrirtækið.
Viðskipti | 31.3.2003 | 10:17 Fitch staðfestir lánshæfi Íslands Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch gaf út lánshæfismat fyrir íslenska ríkið í morgun og staðfestir fyrri matseinkunnir á íslenskum skuldabréfum í erlendri og innlendri mynt eða einkunnirnar AA- fyrir þau fyrrnefndu og AAA fyrir þau síðarnefndu. Skammtímaskuldabréf fá einkunnina F1+. Þetta kemur fram í Morgunpunktum Kaupþings banka í dag.
|
|
|
|
 |