06.07.2003
Í kristinna manna tölu
Séra Hjálmar skírði Gðmund Hermann í Dómkirkjunni í dag (6. juli) að viðstöddum ættingjum, vinum og vandamönnum. Athöfnin fór fram eftir venjulega messu í góðu næði. Langafi Guðmundur og Rósa móðursystir léku undir af sinni alkunnu snilld. Amma Sigga hélt á barninu undir skýrn og systur foreldrana Anna Guðný og Hrund voru skýrnarvottar ásamt Tinnu Dagbjörtu sem aðstoðaði þær. Athöfnin var stutt og laggóð og Guðmundur Hermann eins og engill. Skýrnarkjólinn sem Guðmundur klæddist er ættargripur frá langömmuu Önnu og langafa Guðmundi, Guðmundur Hermann var 17. barnið skírt í þessum kjól á 40 árum.
Eftir athöfnina var farið í Grófarselið þar sem veislumatur var á borðum. Fullt af yndislegu fólki hjáplaði okkur með flest alla þætti skírnarinnar og veislunnar. Það er engu lagi líkt hvað við eigum mikið af góðu fólki að. Við erum innilega þakklát fyrir alla þessa aðstoð og velvild.
Myndir af öllu saman er að finna í myndabankanum á orminum.
|